Áveitan ehf · Njarðarnes 4 · 603 Akureyri · Sími: 469 4242 · aveitan@aveitan.is

Gildin okkar

Fagmennska skilar traustum og góðum árangri.

  • Við leggjum ríka áherslu á góðar og ábyrgar vinnureglur sem mæta þörfum viðskiptavina okkar.
  • Við leitum leiða til að efla okkur í starfi, miðlum þekkingu milli starfsmanna og tileinkum okkur ábyrgar vinnureglur sem skila góðum árangri í okkar verkum.
  • Við búum yfir frábærum mannauð sem beitir faglegum, áreiðanlegum og traustum vinnubrögðum.

Heiðarleiki er grunnurinn að heilbrigðu og góðu samstarfi.

  • Við sýnum viðskiptavinum okkar virðingu og leggjum ríka áherslu á að staðið sé við gefin loforð.
  • Heiðarleg samskipti og virðing er mikilvægur þáttur innan fyrirtækisins.
  • Við tökum ábyrgð á okkar verkum og viðurkennum mistök.
  • Við virðum skoðanir annara og leitum leiða til að skapa gott starfsumhverfi.

Framsækni er mikilvæg til að finna nýjar leiðir og gera betur.

  • Við viljum taka framförum og leitum eftir tækifærum til að bæta okkur.
  • Við erum áræðin og leitum að nýjungum á okkar starfssviði.
  • Við sækjumst eftir því að vera fremst í okkar fagi og veita framúrskarandi þjónustu.
  • Við leitum leiða til að takast á við þau verkefni sem eru fyrir framan okkur og sjáum tækifærin til að læra af þeim.

Gildi Áveitunnar

Við hjá Áveitunni ehf. viljum veita viðskiptavinum okkar góða og trausta þjónustu.

Gildin okkar eru leiðarvísar inn í daginn og stoðir að stefnu fyrirtækisins, þau eru hvatning fyrir okkar starfsfólk sem leitast eftir því að gera betur, þroskast í starfi, vera fagleg, heiðarleg og framsækin.

Þitt álit skiptir okkur máli

Láttu okkur vita hvað þér fannst um þjónustu okkar :)

Thank you! Your submission has been received!
Oops! Something went wrong while submitting the form.
Áveitan ehf · Njarðarnes 4 · 603 Akureyri
Sími: 469 4242 · aveitan@aveitan.is
Áveitan ehf · Njarðarnes 4 · 603 Akureyri · Sími: 469 4242 · aveitan@aveitan.is